Ábyrgðarskilmálar vegna kaupa á notuðum bifreiðum frá Go Leigu.

1. Almennt

Bílaleigan GO ehf. (hér eftir Go Leiga) veitir ábyrgð á völdum notuðum bifreiðum sem seldar eru til einstaklinga.

  • Ábyrgðin gildir frá dagsetningu afsals. Gildistími ábyrgðar fer eftir þeim búnaði sem bilar, sbr. kafla 2.
  • Ábyrgðin er viðbót við réttindi kaupanda samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 og takmarkar þau ekki.

2. Hvað ábyrgðin nær til

Ábyrgðin nær til bilana sem koma fram við eðlilega notkun á ábyrgðartímanum. Gildistími ábyrgðar er eftirfarandi:

  • Ábyrgð á vél gildir í 12 mánuði eða 15.000 km, hvort sem kemur fyrr.
  • Ábyrgð á drifbúnaði gildir í 6 mánuði eða 7.500 km, hvort sem kemur fyrr.
  • Ábyrgð á rafkerfi gildir í 3 mánuði.
  • Ábyrgð á bremsubúnaði gildir í 1 mánuð eða 1.250 km, hvort sem kemur fyrr.

3. Undanþágur ábyrgðar – ábyrgð nær ekki til eftirfarandi liða:

  • Uppítökubifreiðar.
  • Lakkskemmdir og ryð.
  • Bifreiðar í umboðssölu.
  • Bifreiðar seldar sem B vörur.
  • Viðgerða á yfirbyggingu eða undirvagni sem hafa ekki áhrif á aksturshæfni.
  • Loftinntaks- og útblásturskerfa (þ.m.t. túrbínur/þjöppur, inntaksgreinar, pústgreinar, kútar og sótagnasíur)
  • Bilanir sem rekja má til misnotkunar, vanrækslu eða tjóns.
  • Bifreiðar sem hefur verið breytt, t.d. breytingar á fjöðrunarbúnaði.
  • Bifreiðar seldar á sérstöku tilboðsverði eða merktar “án ábyrgðar”.

4. Takmarkanir ábyrgðar

  • Ef bifreið er seld áfram til þriðja aðila innan ábyrgðartímabils fyrnist ábyrgð frá Go Leigu.
  • Ábyrgð fellur úr gildi ef bifreið er ekki þjónustuð samkvæmt stöðlum framleiðanda.
  • Go Leiga endurgreiðir hvorki hluta né í heild kostnað vegna viðgerða á öðrum verkstæðum, jafnvel þótt bilun falli undir ábyrgð.
  • Go Leiga ber ekki ábyrgð á bilunum eða skemmdum sem rekja má til viðgerða sem framkvæmdar eru af öðrum verkstæðum, nema slíkar viðgerðir hafi verið samþykktar skriflega af Go Leigu fyrirfram.
  • Ábyrgð fellur úr gildi sé bifreið notuð í atvinnuskyni
    • Þ.m.t. til útleigu, farþegaflutnina, akstursþjónustu eða sambærilega starfsemi.
  • Ábyrgð gildir ekki þegar bifreið er seld til fyrirtækja.

5. Tilkynning um bilun

  • Tilkynna skal bilun skriflega á bilasala@goleiga.is innan ábyrgðartímabils. Tilkynning með öðrum hætti verður ekki tekin gild.
  • Ef ekki er tilkynnt um bilun innan ábyrgðartímabils fellur ábyrgð úr gildi, þó bilun hafi komið fram áður.
  • Mikilvægt er að tilkynna tjón sem fyrst.

Meðan á viðgerð stendurbýðst kaupanda bílaleigubíll frá Go Leigu á sérkjörum, ef framboð bifreiða til útleigu leyfir.